Þann 23. október næstkomandi efnir BIM Ísland til ráðstefnu í Silfurbergi í Hörpu.
Á ráðstefnunni munu erlendir fyrirlesarar fjalla um hvernig stafrænar umbreytingar geta aukið virðissköpun og hagrætt í hönnun, framkvæmdum og rekstri mannvirkja. Í ár verður lögð áhersla erindi tengt Open BIM, stafrænni stjórnsýslu byggingarmála ásamt sjálfvirkni og gervigreind.
Ráðstefnan er fyrir alla aðila í mannvirkjagerð; hönnuði, verktaka, verkkaupa, rekstraraðila og aðra sérfræðinga.
Sem fyrr mun innviðaráðherra flytja opnunarávarp ráðstefnunnar og fyrirlesarar koma víðsvegar að, með ólíkan bakgrunn, flytja okkur fjölbreytt erindi sem gefa okkur innsýn í það sem er að gerast í framþróun stafrænnar mannvirkjagerðar.
Í ár er gert er ráð fyrir rúmlega 250 ráðstefnugestum sem eiga það sameiginlegt að vilja kynna sér allt sem viðkemur stafrænni mannvirkjagerð. Þér býðst hér frábært tækifæri, bæði að auka þekkingu þína ásamt því að hitta kollega í faginu og stækka tengslanetið.
Miðaverð á ráðstefnuna er 24.900. kr. og fer miðasala fram á tix.is.
Innifalið í miðaverði er morgunverður, hádegisverður og glæsilegt kokteilboð við ráðstefnulok.
DAGSKRÁ RÁÐSTEFNUNNAR
FYRIRLESARAR:
Steen Sunesen
Information quality - Are we digital yet?
Jaan Saar
Automating Building Permitting - the "Killer App" for BIM
David Andrew Fink
Working Smarter at Henning Larsen
Krzysztof Wojslaw
How can generative design contribute to more sustainable solutions?
Tórđur Áki Jacobæus
The Fehmarn project an information Delivery Specification
Giulia Pasinelli
The Fehmarn project an information Delivery Specification
Linus Malm
2018 Oslo Pensjonsforsikring wanted to build one of Norways smartest buildings. How did it go? And what are the learnings along the way?
Richard Kelly
Unlocking Productivity & Sustainability through openBIM
Hugrún Ýr Sigurðardóttir
Stafræn byggingarleyfi