Aðalfundur BIM Ísland var haldinn fimmtudaginn 2. júlí í húsakynnum Samtaka iðnaðarins. Fundurinn var ekki haldinn fyrir 1. maí eins og lög félagsins gera ráð fyrir vegna COVID-19. Fundurinn var frekar fámennur enda liðið á sumarið og gott veður úti.
Fundurinn var tíðindalítill. Á honum fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins, ný stjórn kosin ásamt skoðunarmönnum reikninga.
Þrír stjórnarmeðlimir létu af störfum og er þeim þakkað gott starf:
Guðni Guðnason, FSR
Jóhannes B. Bjarnason, Isavia
Svava Björk Bragadóttir, Arkís
Ný stjórn er búin að halda fyrsta stjórnarfund og skipta með sér verkefnum:
Davíð Friðgeirsson, Verkís, formaður
Hjörtur Sigurðsson, VSB, varaformaður
Hannes Ellert Reynisson, Efla, gjaldkeri
Guðmundur Möller, FSR, meðstjórnandi
Haraldur Arnórsson, IAV, meðstjórnandi
Hjörtur Pálsson, Tark , meðstjórnandi
Ingi Eggert Ásbjarnarson, Isavia, meðstjórnandi
Ingibjörg Birna Kjartansdóttir, Ístak, meðstjórnandi
Jóhann Örn Guðmundsson, Optimum, meðstjórnandi
Skoðunarmenn reikninga eru:
Gunnar Sverrir Gunnarsson, Mannviti
Svava B. Bragadóttir, Arkís