Auglýsing – Aðalfundur BIM Íslands 16. mars

Kæru aðildarfélög, 

Aðalfundur BIM Íslands verður haldinn mánudaginn 16. mars kl. 11:00–12:00 í sal HMS, Borgartúni 21, Reykjavík 

Dagskrá aðalfundar: 

  • Kosning fundarstjóra og fundarritara 
  • Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu ári 
  • Reikningar lagðir fram til samþykktar 
  • Lagabreytingar 
  • Tillaga um breytingu á 5. grein laga BIM Ísland er varðar stjórn félagsins, sjá breytingu hér á eftir. 
  • Ákvörðun aðildargjalda 
  • Kosning stjórnar og skoðunarmanna 
  • Önnur mál 

Aðilar skulu skipa einn aðalfundarfulltrúa hver, sem hefur umboð til fullnaðarafgreiðslu þeirra mála sem fyrir aðalfund liggja, enda hafi þeirra verið getið samkvæmt boðaðri dagskrá aðalfundar. 

Aðilar sem hafa staðið skil á greiðslum árgjalda við upphaf aðalfundar hafa heimild til að tilnefna aðalfundarfulltrúa. 

Við hvetjum alla félagsmenn til að mæta og taka virkan þátt í störfum félagsins. Veitingar verða á fundinum í boði BIM Ísland. 

f.h. stjórnar BIM Ísland
Elvar Ingi Jóhannesson  

 

 

Núverandi grein 

STJÓRN
5.gr.   

Stjórn félagsins skal skipuð 9 aðilum, formanni og átta meðstjórnendum, kjörnum á aðalfundi til 1 árs í senn. Stjórnin kýs varaformann úr sínum hópi og skiptir með sér verkum. Forfallist formaður á kjörtímabilinu, skal varaformaður taka sæti hans.  

Í hverri stjórn skulu sitja minnst 4 stjórnarmeðlimir fráfarandi stjórnar. Kosning skal vera skrifleg ef um mótframboð er að ræða. Falli atkvæði á jöfnu, skal varpa hlutkesti. Aðeins fulltrúar þeirra aðildarfélaga sem tilnefndir hafa verið eru kjörgengnir til stjórnar félagsins á aðalfundi.  

Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda og skal sjá til þess að skipulag og starfsemi félagsins sé jafnan í réttu og góðu horfi. Undirskrift meirihluta stjórnar skuldbindur félagið. Stjórn félagsins veitir prókúruumboð fyrir félagið. 

 

Tillaga stjórnar að lagabreytingu 

STJÓRN   

5.gr.   

Stjórn félagsins skal skipuð 9 einstaklingum, formanni og átta meðstjórnendum, kjörnum á aðalfundi. Formaður er kosinn sérstaklega til tveggja ára í senn og getur að hámarki setið samfellt sem formaður í fjögur starfsár. Aðrir stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára. Við fyrstu stjórnarkjör eftir gildistöku þessarar greinar skulu fjórir meðstjórnendur kjörnir til eins árs og fjórir til tveggja ára, en eftir það skulu á hverjum aðalfundi kjörnir fjórir meðstjórnendur til tveggja ára. Segi stjórnarmaður sig úr stjórn eða láti af stjórnarstörfum áður en kjörtímabili lýkur skal á næsta aðalfundi kjósa í sæti hans til þess tíma sem eftir er af kjörtímabilinu, þannig að skipting kjörtímabila haldist sem best. Stjórnin kýs varaformann og gjaldkera úr sínum hópi og tekur varaformaður sæti formanns ef formannssæti losnar á kjörtímabili. Stjórnin getur starfað þótt sæti í stjórn sé laus, enda séu þó að minnsta kosti fimm stjórnarmenn.    

Kjörgengir til stjórnar eru aðeins starfsmenn aðildarfélaga og einyrkjaaðilar skv. 3. gr., enda séu þeir ekki starfsmenn félagsins skv. 7. gr. Frá hverju aðildarfélagi getur aðeins einn starfsmaður verið kjörgengur til stjórnar á hverjum tíma. Sitji starfsmaður aðildarfélags þegar í stjórn á óloknu kjörtímabili eru aðrir starfsmenn þess aðildarfélags ekki kjörgengir fyrr en kjörtímabili hans lýkur.   

Framboð til stjórnar, þar með talið til formanns, skulu berast stjórn félagsins skriflega eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund. Stjórn skal kynna móttekin framboð fyrir aðildarfélögum eigi síðar en 2 dögum fyrir aðalfund. Berist færri framboð en þau sæti sem kjósa skal í er heimilt aðalfundi að taka við frekari framboðum á fundinum sjálfum.   

Séu frambjóðendur til stjórnar fleiri en þau sæti sem kjósa skal í skal kosning fara fram skriflega, þar með talið með rafrænum hætti. Hver aðalfundarfulltrúi má á kjörseðli merkja við allt að jafnmarga frambjóðendur og þau sæti sem kjósa skal í, og telst kjörseðill ógildur hafi verið merkt við fleiri. Kjörnir teljast þeir frambjóðendur sem flest atkvæði hljóta, með þeirri takmörkun að aðeins einn starfsmaður hvers aðildarfélags geti hlotið kjör í stjórn; hljóti tveir eða fleiri starfsmenn sama aðildarfélags næg atkvæði til kjörs telst kjörinn sá þeirra sem flest atkvæði hlýtur. Falli atkvæði á jöfnu um síðasta sæti skal varpa hlutkesti.   

Séu frambjóðendur jafnmargir eða færri en sæti sem kjósa skal í má aðalfundur samþykkja þá í einu lagi án skriflegrar kosningar.   

Stjórn fer með málefni félagsins milli aðalfunda og sér um að starfsemi þess sé í samræmi við tilgang skv. 2. gr. Hún fer jafnframt með yfirstjórn landseiningar félagsins, buildingSMART Iceland, og tryggir samstarf og samræmingu við buildingSMART International. Formaður, varaformaður og gjaldkeri gegna samsvarandi hlutverkum fyrir buildingSMART Iceland (chairman, vice-chairman, finance contact).    

Undirskrift meirihluta sitjandi stjórnarmanna skuldbindur félagið. Stjórnin veitir prókúruumboð fyrir félagið.