openBIM Harmony
– Nýtt samræmt regluverk fyrir BIM í Evrópu
openBIM Harmony er fyrsta útgáfa European openBIM Forum (EOF) og felur í sér samræmt regluverk af leiðbeiningum, fyrirfram skilgreindum upplýsingakröfum og sniðmátum. Markmiðið er að skýra og samræma hvernig upplýsingar eru skilgreindar, samþykktar og afhentar í BIM verkefnum.
Verkefnið hefur verið þróað í sameiginlegu átaki aðildarlanda til að samhæfa ólík innlend regluverk og leggja sameiginlegan grunn fyrir innleiðingu.
Verkefnið hefur verið þróað í sameiginlegu átaki aðildarlanda til að samhæfa ólík innlend regluverk og leggja sameiginlegan grunn fyrir innleiðingu.
Alþjóðlegir staðlar að baki
Kjarninn í openBIM Harmony byggir á alþjóðlegum stöðlum eins og EN ISO 19650 og CEN/TR 17654 og styður opna vinnuferla með IFC. Regluverkið inniheldur tilbúin skjöl sem nýtast beint í verkefnum, þar á meðal:
-
EIR – Exchange Information Requirements (upplýsingakröfur verkkaupa)
-
BEP – BIM Execution Plan (verk- og framkvæmdaráætlanir fyrir BIM)
-
Leiðbeiningar um uppsetningu CDE – Common Data Environment (sameiginlegs gagnasafns) verkefnum.
Hvað gerir openBIM Harmony?
-
Hjálpar verkkaupum að skilgreina kröfur sínar á skýran hátt.
-
Veitir hönnuðum, verktökum, verkfræðingum og hugbúnaðarframleiðendum fyrirsjáanleg og samræmd ferli.
-
Lækkar þröskulda fyrir upptöku openBIM.
-
Gerir byggingariðnaðinum kleift að starfa skilvirkar og auka samkeppnishæfni.
-
Styður við þekkingarmyndun og færniþróun í greininni.
-
Hjálpar buildingSMART einingum að samræma innlend regluverk á meðan tekið er tillit til staðbundinna reglna og hefða.
Fyrir hvern er þetta?
openBIM Harmony er fyrst og fremst ætlað evrópskum buildingSMART einingum til að laga að sínum innlendu aðstæðum. Hins vegar er regluverkið opið öllum í greininni – frá verkkaupum og eigendum til verktaka, hugbúnaðarframleiðenda og ráðgjafa – sem vilja tileinka sér samræmd openBIM vinnubrögð.
Hvernig er þetta notað?
Útgáfa openBIM Harmony v1.0 er dreift sem zip-skrá með öllum skjölunum.
Þetta er ekki stífur reglurammi heldur tillaga að hagnýtum, sveigjanlegum og aðlögunarhæfum vinnuferlum. Hver buildingSMART eining getur lagað skjölin að sínum innlendu aðstæðum, á meðan fagaðilar geta notað þau sem námsefni, til viðmiðunar eða beint í verkefnum.
Þetta er ekki stífur reglurammi heldur tillaga að hagnýtum, sveigjanlegum og aðlögunarhæfum vinnuferlum. Hver buildingSMART eining getur lagað skjölin að sínum innlendu aðstæðum, á meðan fagaðilar geta notað þau sem námsefni, til viðmiðunar eða beint í verkefnum.
BIM Ísland (buildingSMART Iceland) ætlar fyrst um sinn ekki að gera sérstakar aðlaganir á skjölunum heldur dreifa frumútgáfunni á ensku. Það hefur sýnt sig að þýðingar á hugtökum geta aukið flækjustig í verkefnum.


