Miðasala hafin á Dag stafrænnar mannvirkjagerðar

Þann 8. maí næstkomandi efnir BIM Ísland til ráðstefnu í Silfurbergi í Hörpu. Á ráðstefnunni munu fyrirlesarar fjalla um hvernig stafrænar umbreytingar geta aukið virðissköpun og hagrætt í hönnun, framkvæmdum og rekstri mannvirkja. Í ár er sjónum beint að sameiginlegum grunni stafrænnar mannvirkjagerðar – kröfum, verklýsingum og gögnum — samhliða notkun gervigreindar í hönnun og greiningu.

Ráðstefnan er fyrir alla aðila í mannvirkjagerð; hönnuði, verktaka, verkkaupa, rekstraraðila og aðra sérfræðinga. Dagskrá ráðstefnunnar og fyrirlesarar koma víðsvegar að, með ólíkan bakgrunn, flytja okkur fjölbreytt erindi sem gefa okkur innsýn í það sem er að gerast í framþróun stafrænnar mannvirkjagerðar.

Undanfarin ár hafa 250 – 300 manns sótt ráðstefnuna sem eiga það sameiginlegt að vilja kynna sér allt sem viðkemur stafrænni mannvirkjagerð.  Þér býðst hér frábært tækifæri, bæði að auka þekkingu þína ásamt því að hitta kollega í faginu og stækka tengslanetið.

Miðaverð á ráðstefnuna er 35.000 kr. og fer miðasala fram á tix.is.

Innifalið í miðaverði er morgunverður, hádegisverður, kaffi og happy hour við ráðstefnulok.