Vilt þú taka þátt í að móta framtíð BIM á Íslandi?

Á næsta starfsári losna sæti í stjórn BIM Ísland. Við leitum til aðildarfélaga að metnaðarfullu og áhugasömu fagfólki með reynslu af BIM aðferðafræði og notkun upplýsingatækni í mannvirkjagerð.

Þátttaka í stjórn er raunverulegt tækifæri til að hafa áhrif á þróun BIM á Íslandi, stuðla að aukinni fagmennsku og samvinnu í greininni og miðla reynslu á vettvangi sem skiptir máli.

Jafnframt er þetta kjörið tækifæri fyrir samfélagslega ábyrg fyrirtæki til að styðja við framþróun greinarinnar og taka virkan þátt í þróun markaðarins.

Áhugasöm eru hvött til að senda póst á bim@bim.is með stuttri lýsingu á reynslu fyrir 9. mars 2026. Stjórn BIM Ísland mun í kjölfarið leggja fram tillögu að nýrri stjórn á aðalfundi félagsins.