Aðalfundur BIM Ísland var haldinn fimmtudaginn 7. apríl á Teams  og var ágætis þáttaka á fundinum sem gekk nokkuð greiðlega fyrir sig. Á honum fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins, ný stjórn kosin ásamt skoðunarmönnum reikninga.

Tveir stjórnarmeðlimir létu af störfum og er þeim þakkað gott starf:

  • Hannes Ellert Reynisson, Ístak ​
  • Haraldur Arnórsson, ÍAV

Ný stjórn er búin að halda fyrsta fund og skipta með sér verkefnum:

  • Davíð Friðgeirsson, Verkís​, formaður
  • Elvar Ingi Jóhannesson, Örugg, gjaldkeri
  • Guðmundur Möller, FSRE​, meðstjórnandi
  • Hjörtur Pálsson, Optimum​, varaformaður
  • Hjörtur Sigurðsson, VSB, meðstjórnandi
  • Ingi Eggert Ásbjarnarson, Isavia​, ritari
  • Ingibjörg Birna Kjartansdóttir, Ístak​, meðstjórnandi
  • Sigurður Jens Sigurðsson, Vegagerðin, meðstjórnandi ​
  • Svava Björk Bragadóttir, Arkís​, meðstjórnandi

Skoðunarmenn reikninga eru áfram:

  • Gunnar Sverrir Gunnarsson, Mannviti ​
  • Jóhannes Bjarni Bjarnason, Isavia