Aðalfundur BIM Ísland
Þann 29. apríl kl. 14:30 verður aðalfundur BIM Ísland haldinn í húsakynnum Verkís, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu ári.
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Lagabreytingar
- Kosið verður um lagabreytingu á 3. grein, sjá texta hér fyrir neðan
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning stjórnar og skoðunarmanna
Tveir aðilar í núverandi stjórn gefa ekki kost á sér á næsta ári og leitum við því eftir 2 áhugasömum aðilum í stjórn. Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við stjórn á bim@bim.is eða í síma 840-2772 (Inga)
7. Önnur mál
Nánar auglýst síðar.
8. Kynning frá Ástríði Elínu Ásgeirsdóttur, Þróunarstjóra VDC hjá Per Aarsleff í Danmörku, þar sem farið verður stuttlega yfir BIM/VDC í Aarsleff og svo hvernig BIM/VDC hefur verið notað í tveim verkefnum hjá þeim, BIO4 og Letbanen.
LAGABREYTING Á 3. GREIN (Breyting með rauðu letri):
AÐILD
- gr.
Umsóknum um aðild skal beina til stjórnar og skal umsóknaraðild afgreidd á stjórnarfundi. Aðilar skulu greiða árgjald fyrir 1. mars ár hvert.
Stjórn félagsins gerir tillögu að árgjaldi og leggur fyrir aðalfund. Árgjald er fjórskipt:
Einyrkjaaðild 1
Aðild minni fyrirtækja, færri en 8 starfsmenn
Aðild stærri fyrirtækja, 8 eða fleiri starfsmenn
Aðild menntastofnana 2
Styrktaraðild 3
- Einyrkjaaðild veitir ekki atkvæðarétt á aðalfundi
- Menntastofnanir greiða ekki árgjald
- Styrktaraðilar eru auk þess sýnilegri á heimasíðu félagsins og kynningarefni.
Aðilar skulu tilkynna stjórn félagsins skriflega um úrsögn fyrir 1. febrúar ár hvert.
Hlökkum til að sjá ykkur
Hér er hægt að skrá sig á Aðalfundinn