Aðalfundur BIM Ísland fimmtudaginn 11. apríl

Kæru aðildarfélagar,
Aðalfundur BIM Íslands verður haldinn fimmtudaginn 11. apríl kl. 15:00 – 16:00 hjá  Samtök iðnaðarins, Borgartúni 35.

Dagskrá aðalfundar:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu ári
  3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
  4. Lagabreytingar
  5. Ákvörðun félagsgjalds
  6. Kosning stjórnar og skoðunarmanna
  7. Önnur mál

Aðilar skulu skipa einn aðalfundarfulltrúa hver, sem hefur umboð til fullnaðarafgreiðslu þeirra mála sem fyrir aðalfund liggja, enda hafi þeirra verið getið samkvæmt boðaðri dagskrá aðalfundar.

Aðilar sem hafa staðið skil á greiðslum árgjalda við upphaf aðalfundar hafa heimild til að tilnefna aðalfundarfulltrúa.