23. október: Dagur stafrænnar mannvirkjagerðar

Þann 23. október næstkomandi efnir BIM Ísland aftur  til ráðstefnu í Silfurberg í Hörpu. Á ráðstefnunni verður lögð áhersla á að fá erlenda aðila til að fjalla um hvernig hægt er að auka virðissköpun og hagræða í hönnun, framkvæmd og rekstri mannvirkja með áherslu á Open BIM, stafræn stjórnsýsla byggingarmála ásamt sjálfvirkni og gervigreind. Ráðstefnan er fyrir alla aðila í mannvirkjagerð, hönnuði, verktaka, verkkaupa, rekstraraðila og annarra sérfræðinga.