Markmið vinnustofunnar er að ná yfirsýn yfir þarfir byggingageirans og móta framtíðarsýn BIM Íslands til þriggja ára, skilgreina tilgang og fyrirkomulag samstarfs.
Til að raungera framtíðarsýn verða svo markmið og verkefni samtakanna skilgreind.
Fundurinn er haldinn í fundarsalnum Vindheimum á 7. hæð í Borgartúni 12-14.
Munið að skrá ykkur á bim@bim.is

Sigríður Björk Jónsdóttir framkvæmdastýra Vistbyggðarráðs og Haraldur Arnórsson framkvæmdastjóri BIM Ísland undirrita samstarfssamning.
Sigríður Björk Jónsdóttir framkvæmda- stýra Vistbyggðarráðs og Haraldur Arnórsson framkvæmdastjóri BIM Ísland undirrita samstarfssamning. BIM Ísland hefur undirritað formlegan samstarfssamning við Vistbyggðar- ráð til tveggja ára. Markmiðið er að vinna sameiginlega að því að kynna hagnýtar leiðir og aðferðir við undirbúning og framkvæmdir við mannvirkjagerð á Íslandi.
Framkvæmdir við Fangelsið á Hólmsheiði eru í fullum gangi og er aðferðafræði BIM notuð við framkvæmdina. Lokið er við uppsteypu sökkla og er verið að vinna í uppsettningu forsteyptra eininga og samsteypu þeirra.
Verktaki nýtir sér BIM líkanið til þess að tengja við verkáætlun. Verktaki hefur líka sýnt spjaldtölvuvæðingunni aukin áhuga og hefur í hyggju að prófa spjaldtölvu lausn sem sameinar bæði hefbundnar teikningar og þrívídd líkön. BIM Ísland mun gera þessari spjaldtölvu tækni betri skil þegar reynsla er komin á þá tækni.
Nýverið var fjallað um framkvæmdina í fréttum hjá RÚV.
BIM fyrir verktaka
FSR hefur sett upp BIMlab í fangelsinu þar sem verktaki hefur aðgang að líkaninu. FSR hefur einnig leitað að réttum tækjum og tólum til þess að sýna verktaka hvernig hann getur nýtt sér þá endalausu möguleika af BIM. Skoðaðar hafa verið spjaldtölvulausnir. Ekki er mikið um launsir sem henta IFC líkönum en þá má finna að minnsta kost tvær lausnir sem FSR hefur kíkt á.

